22. júní 2010
21.júní
Við byrjuðum daginn á að skoða bækur. Í samveru vorum við að bjóða „góðan daginn“ á öllum tungumálunum, ræða saman um hvaða dagur væri og mánuður (mánudagur/júní) svo er líka sumarhátíð hjá okkur á morgun og þá mega allir koma til okkar í heimsókn. J Við fórum líka saman með „júní“ vísuna og enduðum svo á að syngja saman nokkur skemmtileg hreyfilög og fórum síðan í morgunmat. Eftir morgunmatinn fórum við að leika okkur með bangsana, dýrin og að skoða saman dýrabækur, hvað afkvæmi dýrana heita. Síðan fórum við í smá ávaxtastund og fórum svo út í góða útiveru áður en það kom að hádegismat. Eftir hádegið vorum við að pinna og leika okkur með dublo-kubbana, við fórum síðan í smá síðdgishressingu og enduðum svo daginn úti í góða veðrinu. J
Til baka
|