10.  júni
Afmæli og myndlistarsýning
10. júní 2006 á leikskólinn Gefnarborg 35 ára afmæli. Í tilefni af því verður
myndlistarsýning í leikskólanum þar sem börnin munu sýna fjölbreytt verk sem þau hafa
unnið. Dagskrá afmælisdagsins verður nánar auglýst síðar.

27. júní
Grillveisla

Okkar árlega grillveisla verður haldin hérna í leikskólanum þriðjudaginn 27. júní
n.k. Dagsetningin gæti breyst ef veðurútlit verður óhagstætt. Þennan dag koma foreldrar
og systkini í leikskólann og við grillum öll saman milli kl. 12:00 og 13:00. Foreldrar
koma með pylsur og pylsubrauð fyrir sig og sitt barn (við komum með fyrir þau sem eru í
hádegismat), leikskólinn sér um drykki, tómatsósu, sinnep og steiktan lauk.
Við vonumst eftir því að sem flestir sjái sér fært að mæta og eiga með okkur ánægjulega
og skemmtilega stund.