Dagbók

30. júní 1. júlí 2010

Í morgun voru börnin að leika með bollastellið og plúskubbana, einnig völdu nokkrir að púsla. Í samverunni fórum við yfir daginn í dag og fórum í síðasta skiptið með júní-vísuna okkar. Síðan fengum við okkur ávexti áður en við fórum út í góða veðrið að leika. Úti vorum við að moka í sandkassanum og hlaupa út um allt. Við vorum líka að róla og hjóla.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að lita á blöð og pinna. Við náðum líka í legókubbana og fórum að byggja úr þeim. Eftir síðdegiskaffið náðum við svo í gítarinn og sungum næstum hálfan klukkutíma. Það var mjög gaman. Síðan héldum við áfram að byggja og nokkrir fóru að pinna og púsla.

...

Meira

29. júní 30. júní 2010

Við byrjuðum á að byggja úr plúskubbum og skoða bækur. Tveir strákar komu með bækur að heiman og sýndu hvor öðrum. Það var gaman að heyra þá lýsa söguþræðinum og skoða myndirnar. Í samverunni fórum við yfir daginn í dag og júní-vísuna okkar. Síðan gáðu veðurmennirnir til veðurs og sögðu síðan börnunum frá. Áður en við fengum okkur svo ávexti sungum við nokkur skemmtileg lög eins og Gráðug kelling og Ó hlýja sól. Svo skelltum við okkur út að leika í góða veðrið.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að leika með furðufötin, bollastell og svo var í boði að pinna við borðið. Einnig fóru nokkur börn inn í hreyfisal og máluðu, sulluðu. Þau máttu líka fá málningarlímband og ýmsa hluti úr pappa til að líma á.  Eftir síðdegiskaffið fórum við svo út að leika. Þar fengu börnin vatn í fötur og pensla. Þau máluðu svo ýmsa hluti á lóðinni og húsið líka.

...

Meira

28. júní 29. júní 2010
Í morgun byrjuðu börnin daginn á því að skoða bækur, einnig völdu nokkrir að pinna. Í samverunni fórum við yfir daginn í dag og vísuna okkar. Einnig gáðu veðurmennirnir okkar til veðurs, þeir sögðu að það væri skýjað og hlýtt úti. Síðan fórum  við í afmælið hennar Anítu Sólar, en hún verður 3.ára í sumarfríinu okkar. Hún bauð okkur í dýrindis ísveislu. Eftir veisluna fórum við í hólfin okkar og klæddum okkur út í góða veðrið. Úti voru börnin að róla sér, hjóla og leika með vatnið.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að leika með legókubbana, litlu sjávardýrin og skoða bækur. Síðan fóru nokkur börn út en hin fóru í listasmiðju í hreyfisalnum.  Eftir síðdegiskaffið lásum við bækur um Snuðru og Tuðru og fórum svo út.   
...

Meira

25. júní 28. júní 2010

Í morgun voru börnin að kubba með trékubbunum inni í herbergi, einnig voru þau dugleg að skoða bækur. Þegar við vorum búin að ganga frá dótinu fórum við fram í samveru, þar töluðum við um daginn í dag og fórum með vísuna okkar. Síðan fórum við inn í matsal en hann Heimir Rafn verður 3.ára á morgun og var að halda upp á afmælið sitt. Hann kom með flotta Cars köku sem rann ljúft ofan í liðið. Eftir afmælið fóru börnin svo út að leika í yndislega veðrið.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að lita fallegar myndir á blöð. Einnig lékum við með litla fiska. Eftir síðdegiskaffið fórum við út að leika okkur.

...

Meira

24. júní 25. júní 2010
Í morgun byrjuðu börnin daginn á því að leika með furðufötin og bollastellið inni í herbergi. Í bókahorninu voru líka nokkur börn að skoða bækur.
Eftir samveruna fórum við út að leika í góða veðrinu. Börnin voru að hjóla, róla og leika í sandkassanum. Einnig hjálpuðu börnin til við að reita arfann sem var kominn upp hjá kartöflugrösunum. Eftir hádegismat og hvíld þá máluðum við hendurnar og stimpluðum þær á blað í öllum hverfislitunum. Börnin léku með minnisspilin með Leiftri McQueen. Þegar allir voru vaknaðir tókum við fram plúskubbana og trékubbana. Eftir síðdegiskaffið fórum við út.
...

Meira

23. júní 24. júní 2010

Í morgun byrjuðu börnin daginn á því að skoða bækurnar sem þau komu sjálf með í leikskólann. Inni í herbergi var verið að leika með bollastellið og trékubbana. Í samverunni voru sungin nokkur skemmtileg „úmbarassa“ lög. Einnig töluðum við um daginn í dag og fórum með júní-vísuna okkar. Síðan fengum við okkur ávexti áður en við kíktum út að leika.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að skoða bækur og lita á blöð. Þegar við vorum búin að taka það allt saman fórum við út að leika í góða veðrið. Við náðum í trékubba í skúrinn og nokkur börn fóru að byggja úr þeim. Sólin skein á okkur og allir duglegir að finna sér eitthvað að gera. Eftir síðdegiskaffið lásum við bók um Dúa og vini hans og síðan fórum við aftur út í góða veðrið.  

...

Meira

22. júní 23. júní 2010

Við byrjuðum á að byggja úr legókubbunum. Við skoðuðum líka bækur um ávexti, bíla og fleira. Nokkrir náðu sér í púsl og púsluðu. Í samverunni fórum við yfir daginn í dag og vísuna okkar, sem börnin eru orðin mjög klár í. Síðan sungum við og fengum okkur eplabita. Þegar þessu var lokið klæddum við okkur út og blésum upp hoppukastalann, það var mjög spennandi. Þegar búið var að blása lofti í hann fengum við að hoppa og skoppa að vild og allir skemmtu sér konunglega. Síðan streymdu foreldrar, systkini og aðrir góðir gestir til okkar á sumarhátíðina og við skemmtum okkur saman. Svo kom hann Orri Páll frá Landvernd og færði okkur Grænfánann í annað sinn. Elstu börnin sem eru í umhverfisnefnd barnanna hjálpuðust að við að flagga fánanum sem blakti fallega í golunni. Eftir það fengu allir sér grillaðar pylsur að borða. Við fórum svo inn að hvíla okkur og þegar það var afstaðið lékum við okkur í rólegheitunum með púsl og liti.  Eftir síðdegiskaffið lékum við með legókubba og plúskubba. 

...

Meira

21. júní 22. júní 2010
Dagurinn byrjaði rólega með því að drengirnir sem mættir voru skoðuðu Latabæjarbók, sem einn þeirra kom með. Þegar morgunmaturinn var búinn náðum við í dýrin og bollastellið og lékum með það. Í samverunni fórum við yfir daginn í dag og vísuna okkar. Síðan gáðum við til veðurs og sungum nokkur lög áður en við fengum okkur ávexti. Í útiverunni voru börnin að leika í rennibrautinni og rólunum. Einnig voru þau dugleg að moka í sandkassanum og búa til flottar kökur.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að lita á blöð og teikna eftir skapalónum. Einnig voru þau að skoða bækurnar. Þegar öll börnin voru vöknuð náðum við í einingakubbana og börnin byggðu flottar byggingar. Eftir síðdegiskaffið fórum við út að leika í góða veðrinu.
...

Meira

18. júní 21. júní 2010
Börnin byrjuðu daginn á að leira og leika með trékubbana og dýrin. Seinna léku þau svo með plúskubbana. Eftir samveru fóru börnin í hreyfisalinn og léku með fötin og boltana. Nokkur börn voru í búðarleik.  Eftir hádegismatinn fóru þau svo í flottan leik með bollastellið.  Og þegar allir voru búnir að fá sér síðdegishressingu fórum við út að leika. ...

Meira

16. júní 21. júní 2010
Í morgun byrjuðu börnin daginn á því að leika með legókubbana og plúskubbana, einnig voru nokkur börn sem völdu það að púsla. Eftir morgunmatinn tókum við allt saman og settumst öll inn í herbergi, en þar las Arna fyrir okkur söguna um Innipúkann þegar hann fór í sína fyrstu strætóferð. Þar lærðu Innipúkinn og börnin ýmislegt um umferðarreglurnar. Eftir sögulesturinn fórum við í hólfin okkar og töluðum um daginn í dag, fórum með vísuna okkar, gáðum til veðurs og æfðum lögin okkar fyrir 17. júní. Þegar við vorum svo búin að borða ávexti klæddum við okkur í pollagallana og fórum út að sulla í pollunum.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að púsla og skoða bækur í horninu okkar. Einnig lékum við okkur með púslkubba og legó kubbana þegar öll börnin voru vöknuð. Eftir síðdegiskaffið fórum við út að leika enda var allt orðið þurrt og sólin byrjuð að skína.
...

Meira

 
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 ...