22. júní 2010
21. júní

Dagurinn byrjaði rólega með því að drengirnir sem mættir voru skoðuðu Latabæjarbók, sem einn þeirra kom með. Þegar morgunmaturinn var búinn náðum við í dýrin og bollastellið og lékum með það. Í samverunni fórum við yfir daginn í dag og vísuna okkar. Síðan gáðum við til veðurs og sungum nokkur lög áður en við fengum okkur ávexti. Í útiverunni voru börnin að leika í rennibrautinni og rólunum. Einnig voru þau dugleg að moka í sandkassanum og búa til flottar kökur.
Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að lita á blöð og teikna eftir skapalónum. Einnig voru þau að skoða bækurnar. Þegar öll börnin voru vöknuð náðum við í einingakubbana og börnin byggðu flottar byggingar. Eftir síðdegiskaffið fórum við út að leika í góða veðrinu.


Til baka