23. júní 2010
22. júní
Við byrjuðum á að byggja úr legókubbunum. Við skoðuðum líka bækur um ávexti, bíla og fleira. Nokkrir náðu sér í púsl og púsluðu. Í samverunni fórum við yfir daginn í dag og vísuna okkar, sem börnin eru orðin mjög klár í. Síðan sungum við og fengum okkur eplabita. Þegar þessu var lokið klæddum við okkur út og blésum upp hoppukastalann, það var mjög spennandi. Þegar búið var að blása lofti í hann fengum við að hoppa og skoppa að vild og allir skemmtu sér konunglega. Síðan streymdu foreldrar, systkini og aðrir góðir gestir til okkar á sumarhátíðina og við skemmtum okkur saman. Svo kom hann Orri Páll frá Landvernd og færði okkur Grænfánann í annað sinn. Elstu börnin sem eru í umhverfisnefnd barnanna hjálpuðust að við að flagga fánanum sem blakti fallega í golunni. Eftir það fengu allir sér grillaðar pylsur að borða. Við fórum svo inn að hvíla okkur og þegar það var afstaðið lékum við okkur í rólegheitunum með púsl og liti. Eftir síðdegiskaffið lékum við með legókubba og plúskubba.
Til baka
|