| 1. Júlí |
2. júlí 2010 |
|
Í dag var haldið áfram með listasmiðjuna inni í sal. Þar var verið að mála á skúlptúra með vatnslitum og með þekjulitum á dregil. Nokkur börn voru að hlusta á tónlist inni í listakrók og í aðalstofu var verið að lita í litabók sem eitt barnið kom með. Það var ekkert farið út fyrir mat vegna veðurs. Í ávaxtatímanum var boðið upp á appelsínur. Eftir hádegi var verið að leika með lestina inni í listakrók, í tölvunni, búa til hús úr dýnunum inni í miðstofu og fleira. Í samverustund var lesin bókin Hagbarður og hvutti.
...
Meira
|
|
| 30. júní |
1. júlí 2010 |
|
Það er orðið frekar fámennt á deildinni hjá okkur þessa dagana en börnin una sér vel í frjálsa leiknum. Þau voru að kubba með litla legóið og með holkubbana. Í ávaxtatímanum var boðið upp á epli og síðan var farið út að leika. Eftir hádegi héldu börnin áfram að leika í frjálsaleiknum. Nokkur börn fóru í salinn og héldu áfram að mála og byggja úr verðlausu efni. Á meðan voru nokkur börn inni á deild í bingó. Í samverustund voru lestnar tvær bækur eftir Þórarinn Leifsson það voru Hrekklaus fer á netið og Leikurinn. Bókinn fyrstu 100 litirnir, formin og orðin var skoðuð og börnin tóku þátt í því að finna ákveðin form og telja þau
...
Meira
|
|
| 29. júní |
30. júní 2010 |
|
Börnin voru að gera verkefni, púsla og teikna. Inni í listakrók var verið að gera leikfimisæfingar, nokkrir strákar voru með fæturnar á gluggakistunni og hendurnar á gólfinu og gerðu armbeygur. Í ávaxtatímanum var boðið upp á gúrkur og síðan var farið út að leika. Í útiverunni fengum við skemmtilega heimsókn, nokkrir krakkar úr vinnuskólanum komu og voru að leika við börnin. Þau voru í fótbolta, eltingaleik, búðarleik og mörgu öðru. Eftir hádegi voru börnin að leika í holkubbunum og hlusta á sögur. Það var haldið áfram að mála inni í hreyfisal þetta verður svona alla þessa viku, börnin skiptast á að fara þangað inn.
...
Meira
|
|
| 28. júní |
29. júní 2010 |
|
Börnin voru að leika með dýnurnar inni í listakrók og hlustuðu á tónlist með. Inni í miðstofu var verið að byggja úr holkubbunum og einnig úr legókubbunum. Börnin eru farin að telja niður í sumarfrí það er orðinn mikill spenningur að hætta sérstaklega þau sem eru að fara í skóla í haust. Í ávaxtatímanum var boðið upp á epli. Arnór Þorri hélt upp á 6 afmælið sitt í dag og bauð hann okkur upp á köku. Eftir afmælið fóru öll börnin út að leika. Eftir hádegi voru börnin að perla og teikna. Dyrnar á hreyfisalnum voru opnar út í garð og búin var til aðstaða til þess að mála og sulla. Það var hægt að vera inni í hreyfisalnum að mála með þekjulitum og einnig hægt að mála úti með vatnslitum. Það var sett vatn í sulludallinn og frystir voru klakar með matalit út í, síðan voru þeir settir út í vatnið og einnig nokkur dýr. Þetta var svo spennandi og skemmtilegt.
...
Meira
|
|
| 25. júní |
28. júní 2010 |
|
Börnin voru að spila bingó, hlusta á tónlist inni í listakrók og að sjálfsögðu í holkubbunum?. Í ávaxtatímanum var boðið upp á appelsínur. Það var svo farið út að leika í fínu veðri. Eftir hádegi var farið í vettvangsferð. Við fórum að skoða myndlistar og handverkssýningar í tilefni af Sólseturshátiðinni. Síðan fórum við í samveru og lásum bók sem heitir „Leikurinn“.
...
Meira
|
|
| 24. júní |
25. júní 2010 |
|
Börnin voru að leika í frjálsaleiknum. Matthildur Erna hélt uppá 5 ára afmælið sitt í dag og bauð hún okkur uppá fótboltaköku. Eftir afmælið var farið út að leika. Eftir hádegi voru börnin að skreyta leikskólann fyrir sólseturshátíðina, þau fengu lituð blöð og klipptu þau út og límdu á gluggana. Leikskólinn er í Gula hverfinu en það var ákveðið að hafa alla fjóra litina vegna þess að börnin koma úr öllum hverfum Garðsins. Eftir síðdegiskaffi fórum við í samveru. Þar lásum við bó sem heitir „Maggi mörgæs-listamaður“.
...
Meira
|
|
| 23. júní |
24. júní 2010 |
|
Börnin voru að leika í holkubbunum og fleira. Þau ræddu mikið um Sumarhátíðina sem var í gær, þeim fannst hoppukastalinn og trúðarnir mest spennandi. Í ávaxtatímanum var boðið uppá appelsínur og síðan var farið út að leika. Eftir hádegi var haldið áfram í holkubbunum og einnig var leikið með smellukubbana. Teiknaðar voru afmælismyndir handa Matthildi og Arnóri. Eftir síðdegiskaffi fórum við í samveru og lásum bók sém heitir „Kátti í koti“. Síðan fórum við út.
...
Meira
|
|
| 22. júní |
23. júní 2010 |
|
Í dag var sumarhátíðin okkar hérna í leikskólanum og voru börnin mjög spennt um morguninn og áttu erfitt með að einbeita sér að leik. Nokkur börn fóru með kennara í leikinn Hver er undir teppinu. Í holkubbunum var verið að byggja bát og í honum var rúm sem hægt var að leggja sig í ef einhver yrði þreyttur. Það var byrjað snemma að mála börnin með andlitsmálningu og síðan vildu allir fara út því hoppukastalinn var kominn upp og fljótlega voru trúðar á vappi. Klukkan 11.30 fóru gestirnir að streyma að og var gaman að sjá hvað margir komu á Sumarhátíðina okkar. Öllum var boðið grillaðar pylsur og djús með. Í hádeginu kom síðan fulltrúi Landverndar og afhenti okkur Grænfánan til næstu tveggja ára. Við erum mjög stoltar yfir þessari viðurkenningu sem starfið okkar hlýtur og ætlum að halda áfram og gera enn betur. Eftir hádegi vorum við inni. Börnin léku í holkubbunum og hlustuðu á tónlist. Í samveruni lásum við bókina „Kötturinn með hattin“.
...
Meira
|
|
| 21. júní |
22. júní 2010 |
|
Í dag héldum við upp á 6 ára afmæli Jónasar Guðjóns. Hann bauð börnunum upp á köku í tilefni dagsins. Eftir afmælið fórum við í gönguferð í góða veðrinu. Við skiluðum myndum heim til barna sem eru hætt í leikskólanum. Síðan var leikið smá stund á leikvellinum og svo haldið heim í leikskólann. Á leið okkar um bæinn leggjum við mikla áherslu á að æfa börnin í umferðarreglunum.
Eftir hádegi fóru börnin út. Þau voru í fótboltaleik, róluðu og hjóluðu. Í samverunni í dag lásum við bók sem heitir „Snuðra og Tuðra í miðbænum“.
...
Meira
|
|
| 18. júní |
21. júní 2010 |
|
Í frjálsa leiknum var verið að gera verkefni, púsla, perla, teikna og lita. Nokkur börn voru í kubbaleik og í listakrók var dansað við tónlist sem ein stúlka kom með í leikskólann. Við héldum upp á afmælið hennar Berglindar Steinunnar sem verður 6 ára í sumarfríinu. Hún bauð okkur upp á kanilsnúða og snakk. Eftir afmælið flokkuðum við pappír, pappa og annað sem til fellur í eldhúsinu og fórum með í endurvinnslugáminn. Síðan fóru allir út að leika. Eftir hádegi voru börnin inni. Þau léku sér í holkubbunum og perluðu. Í samverustundinni lásum við bók sem heitir „Heillgleraugun“. Síðan fórum við út að leika.
...
Meira
|
|
| |
| 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 ... |