| 2.júlí |
2. júlí 2010 |
|
Jæja þá þetta er síðasti dagurinn fyrir sumarfrí og börnin eru orðin mjög spennt J. Börnin byrjuðu daginn á að fara í holkubbuna, leika sér með bollastellið og perla. Eftir morgunmatinn héldu börnin áfram að leika sér inni á deild. Klukkan 10 hittust allar deildirnar í fataklefanum hjá Vinakot, hann Aron Máni og fjölskylda hans voru að kveðja börnin og kennarana á leikskólanum. Þau gáfu öllum konunum á leikskólanum rósJ og svo gáfu þau leikskólanum nýtt hjól J takk fyrir okkur Aron Máni og fjölskylda. Eftir kveðjustundina fóru börnin út að leika sér í góða veðrinu. Þegar börnin voru búin að borða og hvíla sig léku þau sér inn á deild með smellukubba,perlur, lita í litabók og byggja í einingakubbunum. Börnin borðuðu síðdegishressinguna út og enduðu daginn á að leika úti.
Hafið þið það sem allra best í sumarfríinu og hittumst hress og kát þann 10.ágúst J.
...
Meira
|
|
| 1.júlí |
2. júlí 2010 |
|
.JPG)
Börnin byrjuðu daginn á að leika sér í holkubbunum, lita á blað og perla. Eftir morgunmatinn héldu börnin áfram að leika sér inni á deild. Nokkur börn völdu sér að fara í salinn að vatnslitaJ. Eftir hádegismatinn og hvíldina voru börnin að byggja í holkubbunum, perla, byggja í holkubbunum og leika sér með fötin. Að lokinni síðdegishressingu fóru börnin í salinn að mála á pappír J.
...
Meira
|
|
| 30.júní |
1. júlí 2010 |
|
.JPG)
Börnin byrjuðu daginn á því að leika sér í holkubbunum, dýrunum, einingarkubbunum og þræða. Eftir morgunmatinn og ávaxtastundina var farið út að leika sér,þar voru þau að hjóla,moka og róla. Þegar allir voru búnir að borða og fara í hvíld voru börnin að leika með dýrin,smellukubba,bílana,fötin,bílabrautina og bollastellið.Síðan fengum við okkur síðdegishressingu og það voru vöfflur,sulta,glassúr og rjómi í boði og fannst börnunum það mjög gott.Eftir síðdegishressinguna fóru nokkur börn í salinn að mála og sulla og nokkur fóru í heimsókn á Vinakot.
...
Meira
|
|
| 28. júní |
29. júní 2010 |
|
Börnin byrjuðu daginn á því að leika sér í holkubbunum, bollastellinu, dýrunum, perla og teikna. Þegar þau voru búin að taka saman var haldið upp á 4 ára afmælið hans Einars Þórs. Hann bauð upp á ís. Þegar afmælið var búið klæddu börnin sig í og fóru út að leika sér. Þar voru þau að hjóla, leika sér með bílana í sandkassanum, fengu pensil og vatn í fötu og voru að mála, róla og renna í rennubrautinni. Að hádegismatnum og hvíldinni lokinni var sett upp listasmiðja inn í sal og fengu börnin að mála þar einnig er í boði að sulla í sullukari sem er staðsett úti og þar er líka hægt að vatnslita og þá eru börnin á tásunum úti í grasinu.
.JPG)
...
Meira
|
|
| 25. júní |
29. júní 2010 |
|
Börnin byrjuðu daginn á því að leika sér í holkubbunum, bílaleik og perla. Eftir morgunmatinn og samverustund föndruðu börnin blóm sem sett voru í gluggana sem snúa út á götu, blómin voru höfð í litunum eins og allar göturnar eru. Síðan var farið út að leika. Þar voru börnin að leika sér að hjóla, moka í sandkassanum, róla og renna. Eftir hádegismatinn voru börnin að leika sér inn á deild í holkubbunum, dýrunum og seglunum. Síðan var farið út að leika. Eftir síðdegiskaffið var farið aftur út í góða veðrið.
.JPG)
...
Meira
|
|
|
|
| 23. júní |
29. júní 2010 |
|
Börnin byrjuðu daginn á því að leika sér í holkubbunum, perla og teikna afmælismyndir. Eftir morgunmatinn og samverustund var haldið upp á afmæli hans Örvars Inga. Hann bauð okkur upp á ís ? Eftir afmælið var farið út að leika sér í góða veðrinu. Eftir hádegismat og hvíldina léku börnin sér aðeins inn á deild en síðan var farið aftur út að leika. Eftir síðdegiskaffið léku börnin sér inn á deild í frjálsum leik.
.JPG)
...
Meira
|
|
| 22. júní |
29. júní 2010 |
|
Börnin byrjuðu daginn á því að leika sér í holkubbunum. Síðan þegar þau voru búin að taka saman og búin í samverunni þá var haldið upp á afmælið hennar Júlíu Mistar. Þegar afmælið var búið þá fengu krakkarnir að láta mála sig í framan því í dag er Sumarhátíð leikskólans. Að andlitsmálingu lokinni þá fóru börnin út að leika sér í hoppukastalanum. Þar voru líka trúðar sem léku listir sínar og skemmtu börnunum. Kokkar leikskólans grilluðu pylsur. Þegar Sumarhátíðin var búin fóru allir kakkarnir inn að leika sér þar sem það var byrjað að rigna og þeim orðið kalt. Að síðdegiskaffinu loknu héldu börnin áfram að leika sér inn á deild.
.JPG)
...
Meira
|
|
| 21. júní |
23. júní 2010 |
|
Börnin byrjuðu daginn á því að leika sér í holkubbunum, perla og bílaleik. Eftir morgunmatinn héldu börnin áfram að leika sér í frjálsa leiknum. Að lokinni samveru og ávaxtastund var farið út að leika sér. Þar voru börnin að leika sér í sandkassanum, bílaleik, róla og hjóla. Eftir útiveruna var farið inn að borða hádegismat. Eftir matinn og hvíldina voru börnin að teikna afmælismyndir, perla, spila bingó og leika í dýrunum.Þegar allir voru búnir að fá sér síðdegishressingu fórum við aftur út að leika í góða veðrinu.
.JPG)
Meira
|
|
| 18. júní |
23. júní 2010 |
|
Börnin byrjuðu daginn á að leika sér í holkubbunum og að perla. Þegar voru búin að ganga frá hélt Líf upp á afmælið sitt og einnig var hún að kveðja börnin þar sem hún er að hætta á leikskólanum. Eftir afmælið fóru börnin inn á deild og þar voru þau að endurvinna pappír?. Eftir hádegismatinn og hvíldina héldu börnin áfram að endurvinna pappír. Þau sem voru búin að endurvinna fóru að byggja úr holkubbunum.
.JPG)
...
Meira
|
|
| |
| 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 ... |