Foreldrakaffi
Tvisvar á ári bjóðum við foreldrum í foreldrakaffi. Þá bjóðum við foreldrum að borða morgunverð eða síðdegishressingu með börnunum  í leikskólanum. Þetta er kjörið tækifæri fyrir foreldra til að njóta samvista með barninu sínu í leikskólanum, spjalla við starfsfólk, foreldra og önnur börn.