Opið hús

Opið hús er nokkrum sinnum yfir veturinn. Þá viljum við gjarnan fá foreldra, afa, ömmur eða aðra gesti í heimsókn til okkar á meðan starfið er í fullum gangi. Tilgangurinn er að gera leikskólastarfið opnara og gefa fólki kost á að koma og fylgst með því sem er að gerast í leikskólanum og jafnvel taka þátt í starfinu með börnunum.