Skilaboð

Sumarfrí 29. júní 2010
Leikskólanum verður lokað vegna sumarleyfa mánudaginn 5. júlí  og opnar aftur þriðjudaginn 10. ágúst. ...

Meira

Fáni og merki Sólseturshátíðarinnar 24. júní 2010

Leitað var til barnanna á Vinakoti eftir hugmyndum að merki til að nota á fána og merki Sólseturshátíðarinnar. Dómnefnd valdi eina af þessum myndum, myndin er eftir Rannveigu Íseyju Kristjánsdóttur. Við óskum Rannveigu Íseyju innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir. Þetta er mikill heiður fyrir okkar skóla. Allar hugmyndirnar verða til sýnis í gangi Bæjarskrifstofunnar um helgina.

Rannveigu Íseyju veður veitt viðurkenning á fjölskylduskemmtun Sólseturhátíðarinnar á laugardaginn kl:15:00. Gaman væra að sem flestir mættu þar til að samgleðjast henni.

...

Meira

Sumarhátóð afhending Grænfánas og gjöf frá foreldrafélaginu 23. júní 2010

Þriðjudaginn 22 júní héldum við sumarhátíð í leikskólanum.þá fengum við Grænfánann afhentan í annað sinn. Við erum afar stolt af því og ætlum að halda áfram að þróa okkur í umhverfisvinnu. Foreldrafélagið færði leikskólaum bolta og húllahringi að gjöf og þökkum við þeim kærlega fyrir. Foreldrar og systkini fjölmenntu á hátíðina einnig mættti leiklistahópur frá vinnuskólanum og skemmti börnunum. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir komuna.

...

Meira

Sumarhátíð 22. júní 18. júní 2010

Okkar árlega sumarhátíð verður haldin hérna í leikskólanum þriðjudaginn 22. júní milli kl. 11:30 og 13:00. Leikskólinn býður upp á grillaðar pylsur.

Hoppukastali og trúðar verða á svæðinu. 

kl:12:15 afhendir fulltrúi frá Landvernd  Grænfánann sem við erum að fá í annað sinn. Foreldrar og systkini velkomin. Sjáumst kát og hress, vonandi í góðu veðri.

Ath. dagsetning gæti breyst ef veðurútlit verður slæmt.

...

Meira

17. júní 16. júní 2010

Á 17 júní hátíðinni í sal Gerðaskóla  verða leikskólabörnin með söngatriði. Við viljum biðja foreldra að mæta með börn sín við sviðið kl:13:50.  Hátíðarhöldin byrja kl: 14:00 með söngatriðinu okkar.

Börnin eru búin að æfa mikið fyrir þessa hátíð og því væri gaman að sem flestir mættu.                  

...

Meira

Starfið með elstu börnunum 9. júní 2010

Mikið hefur verið um að vera hjá elsta árgangi leikskólans undarfarnar vikur. Útskriftardagurinn var haldinn hátíðlegur með útskriftarferð og veislu. Börnin fengu viðurkenningu fyrir þátttöku í verkefninu "Logi og Glóð", en það er samstarfsverkefni leikskólans og Brunavarna Suðurnesja. Einnig fóru börnin í heimsóknir í fiskverkun H. Pétursson e.h.f., tónlistarskólann og í Gerðaskóla en allt er þetta liður í því að byggja upp öryggi barnanna og hjálpa þeim að kynnast sinni heimabyggð áður en þau fara frá okkur.

 
Við smábátahöfnina í Grófinni í Reykjanesbæ                    Leikjagarðurinn í Ásbrú

 
Glæsilegur útskriftarhópur                                                  Gott að fá sér hressingu efitir skemmtilega útskriftarferð

 
Ólafur frá Brunavörnum Suðurnesja veitti öllum viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í Loga og Glóð

 
Mikil eftirvænting í gangi fyrir væntanlega skólagöngu

 
Efnilegur trommuleikari                                                        Geisha Mae og Piotr taka sig vel út við píanóið 

 
Það var fróðlegt að sjá hvernig fiskurinn er unninn hjá H. Péturssyni

...

Meira

Myndir frá vorsýningunni 3. júní 2010

Vorsýning Gefnarborgar var formlega opnuð í blíðskaparveðri föstudaginn 28. maí s.l. Margir sáu sér fært að mæta og taka þátt í þessari hátíðlegu stund með okkur og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.
Nú fer senn að líða að lokum sýningarinnar og því hvetjum við þá sem enn eiga eftir að koma og skoða, endilega að kíkja við.  
Síðasti dagur sýningarinnar er föstudagurinn 4. júní og er opið á opnunatíma leikskólans.

     

    

    

...

Meira

Sumarfrí 2. júní 2010
Leikskólanum verður lokað vegna sumarleyfa mánudaginn 5. júlí og opnar aftur
þriðjudaginn 10.ágúst.

...

Meira

Leiðrétting á mistökum 31. maí 2010

Vegna villu í bankakerfinu urðu þau leiðu mistök að maí reikningar vegna leikskólagjalda voru stofnaðir tvisvar. Búið er að leiðrétta þau og er því einungis hægt að greiða annan seðilinn.
Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum og vonum að þau hafi ekki valdið ykkur ónæði.

...

Meira

Vorsýning Gefnarborgar 25. maí 2010

Föstudaginn 28. maí n.k. kl. 14:00 verður vorsýning leikskólans formlega opnuð.

Opnunardagskrá:
• Leikskólabörnin flytja friðartónverk
• Börn frá tónlistarskólanum spila á hljóðfæri
• Skólahópur syngur nokkur lög

Sýningin verður opin á opnunartíma leikskólans þ.e. kl. 8:00 – 17:00 til 4. júní.
Allir hvattir til að mæta

...

Meira

 
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 ...