24. júní 2010
Fáni og merki Sólseturshátíðarinnar

Leitað var til barnanna á Vinakoti eftir hugmyndum að merki til að nota á fána og merki Sólseturshátíðarinnar. Dómnefnd valdi eina af þessum myndum, myndin er eftir Rannveigu Íseyju Kristjánsdóttur. Við óskum Rannveigu Íseyju innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir. Þetta er mikill heiður fyrir okkar skóla. Allar hugmyndirnar verða til sýnis í gangi Bæjarskrifstofunnar um helgina.

Rannveigu Íseyju veður veitt viðurkenning á fjölskylduskemmtun Sólseturhátíðarinnar á laugardaginn kl:15:00. Gaman væra að sem flestir mættu þar til að samgleðjast henni.



Til baka