Velkomin í Leikskólann Gefnarborg

Leikskólinn er 4 deilda leikskóli og er fjöldi barna tæplega 90.  Rekstur skólans er boðinn út og er rekstraraðili leikskólans Hafrún Víglundsdóttir.
 
Leikskólinn Gefnarborg var byggður af Kvenfélaginu Gefn og tók til starfa 10. júní 1971.
 
Viðbygging var tekin í notkun 1980.  Kvenfélagið rak leikskólann til áramóta 1985-1986.  Þá keypti Sveitarfélagið hann og rak til 1.ágúst 1986.  Þá var reksturinn boðinn út og hefur verið í einkarekstri síðan. 15. ágúst 1999 fluttum við í núverandi húsnæði.  Árið 2006 var byggt við leikskólann tvær deildir og salur. Þann 15. ágúst sama ár var önnur deildin og salurinn tekin í notkun en fjórða deildin var tekin í notkun í ágúst 2008.
 
Deildirnar í skólanum heita Kátakot sem er fyrir 2 ára börn,  Sælukot fyrir 3 ára börn, Hálsakot fyrir 4 ára börn og Vinakot fyrir 5 ára börn. Í leikskólanum er boðið upp á morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu.  Hægt er að fá vistun í 4-9 ½  tíma á dag.  Umsóknareyðublöð fyrir vistun er hægt að fá í leikskólanum og þurfa börnin að vera orðin eins árs þegar sótt er um.  Leikskólinn starfar eftir Aðalnámskrá leikskóla sem Menntamálaráðuneytið gat út og tók gildi 1. júlí 1999.
 
 

Kátakot - dagbók

8.mars
5.mars
4.mars

Sælukot - dagbók

5. mars
3. mars
2. mars

Vinakot - dagbók

9. mars
8. mars
5. mars

Hálsakot - dagbók

9.mars
8.mars
5.mars