Hefðir og hátíðir
Í íslensku þjóðlífi eru ýmsar hefðir og hátíðir sem börnin taka þátt í. Í leikskólanum okkar hafa líka skapast ýmsar hefðir og hátíðir.
AfmæliAfmælisdagur er stór dagur fyrir barnið. Það fær kórónu sem skreytt er með fánum frá þeirra löndum, smá glaðning frá hinum börnunum, síðan er að sjálfsögðu sunginn afmælissöngurinn. Þau mega halda veislu fyrir hin börnin á deildinni og koma með eitthvað góðgæti en ekki er leyfilegt að koma með sælgæti, ekki heldur sem skraut á köku.
ÞorrablótÍ byrjun þorra höldum við þorrablót. Þá borðum við hefðbundinn þorramat og fræðumst um gamla tímann.
ÖskudagurÁ Öskudag höldum við furðufataball. Þá mega allir koma í furðufötum. Við “sláum köttinn úr tunnunni”, dönsum og gerum margt fleira skemmtilegt.
ÚtskriftÁ hverju vori er hópur barna á þeim merku tímamótum að hætta í leikskóla og byrja í grunnskóla. Af þessu tilefni er haldið sameiginlegt útskriftarhóf í lok maí. Þau byrja daginn á ferðalagi, síðan er haldin veisla í leikskólanum. Þau undirbúa veisluna sjálf með því að baka kökur. Þetta er mjög merkilegur dagur. Allir fá útskriftarhatta og einhvern glaðning til minningar um leikskóladvölina. Þessi útskriftarveisla kemur í staðinn fyrir að hvert og eitt barn haldi veislu þegar það hættir.
VetrarlokÍ lok vetrar er alltaf einhverskonar uppákoma s.s. myndlistarsýning, skemmtun, farið í ferðalag eða eitthvað annað skemmtilegt.
Grillveisla.JPG&ext=jpg&w=250&h=188)
Við reynum að finna einn góðviðrisdag í síðustu vikunni fyrir sumarfrí til að halda grillveislu. Þá koma foreldrar og systkini og við grillum saman í hádeginu.
JólaballRétt fyrir jólin höldum við jólaball. Þá koma allir í sparifötum, við dönsum í kringum jólatré og jólasveinninn kemur í heimsókn.