Leikskólastarfið
Leikskólastarf á Íslandi byggist á lögum um leikskóla nr. 78/1994 og aðalnámskrá leikskóla sem tók gildi 1. júlí 1999. Leikskólinn er, með lögum frá Menntamálaráðuneytinu, uppeldis- og menntastofnun, skóli þar sem börn læra og þroskast gegnum leik. Leikskólauppeldi er sértækt uppeldi og mikilvæg viðbót við uppeldi foreldra.
Samkvæmt lögum um leikskóla skal meginmarkmið með uppeldi í leikskóla vera að
. Veita börnum umönnun, búa þeim hollt uppeldisumhverfi og örugg leikskilyrði
. Gefa börnum kost á að taka þátt í leik og starfi og njóta fjölbreyttra uppeldiskosta barnahópsins undir leiðsögn leikskólakennara
. Kappkosta í samvinnu við heimilin að efla alhliða þroska barna í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins og leitast við að hlúa að þeim andlega og líkamlega svo þau fái notið bernsku sinnar
. Stuðla að umburðarlyndi og víðsýni barna og jafna uppeldisaðstöðu þeirra í hvívetna
. Efla kristilegt siðgæði barna og leggja grundvöll að því að börnin verði sjálfstæðir, hugsandi, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri og sífelldri þróun
. Rækta tjáningar- og sköpunarmátt barna í þeim tilgangi að styrkja sjálfsmynd þeirra, öryggi og getu til að leysa mál sín á friðsamlegan hátt.