Að byrja í leikskóla / Aðlögun
Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess. Allt er framandi og ókunnugt. Því er mikilvægt að vel sé staðið að aðlögun í upphafi. Hvernig til tekst í byrjun getur haft áhrif á alla leikskólagöngu barnsins. Meðan á aðlögun stendur kynnist barnið aðstæðum í leikskólanum, starfsfólki og börnunum á deildinni, þannig að það öðlast öryggiskennd áður en það verður skilið eftir. Fyrsta daginn kemur barnið í heimsókn í útiveru. Annan daginn kemur barnið í inniveru. Fyrstu tvo dagana eru foreldrar alveg með barninu og dvelja í einn til tvo klukkutíma. Síðan fer aðlögunin eftir því hvernig gengur hjá hverju barni.