Daglegt líf í leikskólanum

Dagskipulagið.
07:45 – 08:20 Frjáls leikur
08:20 – 09:10 Morgunmatur
09:10 – 11:00 Frjáls leikur /samvera
11:00 – 12:00 Útivera – frjáls leikur
12:00 – 12:45 Hádegismatur
12:45 – 13:15 Samvera – hvíld
13:15 – 14:30 Frjáls leikur úti eða inni
14:30 – 15:30 Síðdegishressing
15:30 – 15:45 Samvera
15:45 – 17:00  Frjáls leikur

Frjáls leikur
Frjálsi leikurinn fær mjög gott rými og mjög góðan tíma. Leikurinn opnar börnum sýn á lífið og tilveruna.  Í gegnum leikinn aflar barnið sér þekkingar og þjálfar með sér ýmis konar færni í samræmi við þroska sinn og vinnur úr eigin reynslu. Frjáls og sjálfsprottinn leikur er sköpun og í leiknum endurspeglast þarfir barnanna og upplifanir. Börn læra að vinna saman, taka tillit hvert til annars, sýna frumkvæði, uppgötva og sjálfstæði þeirra eflist. Áhersla er lögð á leikgleði barnanna, sjálfstraust og að þau fái að vera börn og njóta bernsku sinnar.
Frjáls leikur eflir allar greindir.

Samverustundir
Í samverustundum leggjum við áherslu á rólega stund. Þar fer fram lestur, söngur, umræður, fræðsla og fleira. Auk reglulegra samverustunda inni á deildum þá er sameiginleg samvera í sal einu sinni í viku. Þær eru mjög fjölbreyttar og skemmtilegar. Þar fara fram leikrit, söngur, leikir, fjölmenningarleg fræðsla og margt fleira. Samverustundir efla mál-, tónlistar- og samskiptagreind.

Stig af stigi
Í nútíma samfélagi er mikil þörf á félagslegri hæfni en sum börn eiga erfitt með að læra hana.  Stig af stigi er kennsluaðferð til að efla félags- og tilfinningaþroska.  Kennsluefnið er ætlað börnum 4 – 6 ára.  Þar æfum við okkur í að setja orð á eigin tilfinningar, greina vandamálin og leita lausna, setja okkur í spor annarra og ýmislegt fleira.
Hvíld og svefn
Hvíld er nauðsynleg börnum sem dvelja stóran hluta dagsins í leikskólanum. Í hvíld reynum við að skapa rólegt andrúmsloft þar sem lesin er saga og hlustað á tónlist. Yngri börn og heilsdagsbörn fá tækifæri til svefns, fer það eftir ósk og þörfum barna hverju sinni. Mál- og tónlistargreind eflist í hvíldartíma.

Koma og fara
Við leggjum áherslu á að allir finni sig velkomna bæði börn og foreldrar. Ef aðrir en foreldrar sækja barnið ber að láta okkur sérstaklega vita. Ekki er æskilegt að börn yngri en 9 ára komi með eða sæki barnið. Foreldrar eru ávallt velkomnir að fylgjast með starfi barna sinna í leikskólanum en taka skal fram að þeim ber að virða þagnarskyldu.

Matartími
Mikil áhersla er lögð á góðan, hollan og fjölbreyttan mat. Matseðill vikunnar er hengdur upp á báðum deildum. Börnunum gefst kostur á að aðstoða við undirbúning matartímans, t.d. með því að leggja á borð. Meðan á matartíma stendur gefst okkur mjög gott tækifæri til þess að æfa borðsiði, kurteisi, bera virðingu fyrir matnum og ræða hvað sé hollt og óhollt. Við leggjum áherslu á rólega stund og umræður. Í matartímanum eflum við mál-, samskipta- og hreyfigreind.