Elstu börnin
Unnið er sérstaklega með þeim börnum sem eru á síðasta ári í leikskólanum. Þau fara tvisvar sinnum í viku í skipulagða vinnustund. Þar er lögð áhersla á að efla sjálfstraust, sjálfsmynd, samvinnu og sjálfstæði í vinnubrögðum. Einnig er mikið unnið með hljóðkerfisvitund barnanna og þau þjálfuð í framkomu og ýmiss konar verkefnavinnu. Lögð er áhersla á að börnin kynnist sinni heimabyggð áður en þau fara frá okkur. Það gerum við með því að fara í heimsóknir í hin ýmsu fyrirtæki í Garðinum s.s. frystihús/fiskhús, bæjarskrifstofuna, Garðvang, Gerðaskóla, bókasafnið og tónlistarskólann. Þegar börnin útskrifast úr skólanum fara þau í útskriftarferð og eftir það er veisla í leikskólanum þar sem þau fá útskriftarbók