Fjölmenning

Á undanförnum árum hefur Garðurinn verið að breytast úr því að vera einsleitt samfélag í fjölþjóðlegt eins og er að gerast almennt á Íslandi. Útfrá þessu breytta samfélagsformi og íbúasamsetningu höfum við verið að endurskoða vinnubrögð okkar og leggjum áherslu á að hinn mikli margbreytileiki íbúanna fái að njóta sín sem best. Þar nýtist fjölgreindarkenningin vel vegna þess að í henni er lögð áhersla á ólíka hæfileika barnanna, að hvert og eitt barn þurfi að fá kennsluaðferðir við sitt hæfi og virðingu fyrir margbreytileika mannanna.
Í Aðalnámskrá leikskóla segir að leikskólinn eigi að hjálpa börnum frá öðrum menningarsvæðum að vera virkir þátttakendur í hinu nýja samfélagi, án þess að þau glati tengslum við eigin menningu, tungu og trú. Þau þurfi að öðlast sjálfsöryggi í hinu nýja umhverfi og tilfinningu fyrir því að þau séu velkomin þar, því þannig halda þau sjálfsvirðingu sinni og styrkja sjálfstraustið. Einnig að leikskólum beri að rækta virðingu fyrir öðrum, hver sem uppruni þeirra er og þrátt fyrir að þjóðir heimsins séu ólíkar í siðum og háttum eigi þær að geta lifað í sátt og samlyndi.