Mat á leikskólastarfi

Í reglugerð um starfsemi leikskóla segir að sérhver leikskóli skuli móta aðferðir til að meta uppeldisstarf, stjórnunarhætti og samskipti bæði innan leikskólans og utan.
Á Gefnarborg er mat unnið á eftirfarandi hátt:

Mat starfsfólks fer fram á starfsmannafundum sem haldnir eru einu sinni í mánuði. Ýtarlegt mat fer fram á starfsmannafundum í janúar og maí. Niðurstöður eru síðan metnar og fundnar nýjar leiðir til að laga þar sem betur má fara.
Leikskólastjóri tekur starfsmannaviðtöl í apríl/ maí, þar sem m.a. er skoðað hvernig starfsmanni líður, hvernig honum gengur, hvernig honum finnst starfið ganga og hvað honum finnst mega betur fara.

Mat foreldra
fer fram annað hvert ár með því að þeir svara spurningalista um viðhorf og væntingar til leikskólans, sem þeir síðan skila nafnlausum. Niðurstöður eru síðan ræddar, metnar og viðeigandi ráðstafanir gerðar.

Mat á þroska,
líðan og hegðun barna er m.a. gert með því að fylla út gátlista sem síðan er farið yfir í foreldraviðtölum einu sinni á ári og oftar ef þurfa þykir. Málþroskaprófið “Hljóm” er lagt fyrir elstu börnin tvisvar á ári. Íslenski þroskalistinn, málþroskaprófið “Orðaskil” og ýmsir aðrir gátlistar eru notaðir eftir þörfum