Námssviðin


Hreyfing
Hreyfing stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan. Barnið öðlast betri líkamsvitund, þol, kraft og aukið úthald. Í hreyfileikjum eykst sjálfstraust og öryggi barnsins. Á Gefnarborg er lögð rík áhersla á hreyfingu. Skipulögð hreyfing er í hverri viku í sal. Markmiðið með því er að efla rýmis-, sjálfsþekkingar- og hreyfigreind ásamt ofantöldum þáttum. Við leggjum mikla áherslu á leikgleði sem er undirstaða þess að börn fái notið sín.

Útivera er stór hluti starfsins á Gefnarborg. Leikskólinn býr vel hvað umhverfi varðar, stutt er í fjöru, móa og heiði. Í útiveru fá börnin tækifæri til að þroska grófhreyfingar sínar og sköpunargáfu. Við förum mikið í gönguferðir og náttúruskoðanir. Í útiveru eflist rýmis-, hreyfi-, umhverfis- og samskiptagreind.

Málrækt
Við leggjum mikla áherslu á málrækt þar sem tungumálið er hluti af menningu okkar. Á Gefnarborg eru börn af ýmsu þjóðerni og frá ólíkum menningarsvæðum.  Um leið og við kennum þeim okkar tungumál berum við jafnframt virðingu fyrir þeirra með því að læra einstök orð á  þeirra máli eins og t.d. að bjóða góðan dag. Við lesum mikið bæði hefðbundnar bækur ásamt þjóðsögum og ævintýrum. Við syngjum, lærum þulur og notum öll tækifæri til að ræða saman. Við leikum okkur að því að ríma og lærum málshætti og hugtök. Börnin fá tækifæri til að leika sér í tölvuforritum sem efla hugtaka- og málskilning. Elsti árgangur leikskólans fær skipulagða tíma í markvissri málörvun.  Með þessu öllu eflum við orðaforða og málskilning barnanna auk þess sem við eflum allar greindir.

Myndsköpun
Myndsköpun er mikilvægur þáttur í tjáningu, frelsi og sköpunargáfu barna. Á Gefnarborg leggjum við mikla áherslu á að börnin fái fjölbreyttan efnivið og læri meðhöndlun ýmissa áhalda. Þau fá tækifæri til að láta eigið ímyndunarafl og sköpunargleði ráða ferðinni. Starfsfólk leikskólans nýtir vel náttúru og umhverfi leikskólans til sköpunar. Myndsköpun eflir allar greindir.

Tónlist
Tónlist er mikilvægur þáttur í leikskólauppeldi. Við leggjum mikla áherslu á söng,
hreyfingu og hlustun auk þess sem börnin fá að komast í snertingu við ýmsa hljóðgjafa. Elstu börn leikskólans fara í árlegar heimsóknir í Tónlistarskólann þar sem þau fá að prófa hin ýmsu hljóðfæri. Tónlist er ríkur þáttur í allri þjóðmenningu og leggjum við áherslu á tónlist frá ýmsum þjóðum og þá sér í lagi frá þjóðum barna sem dvelja á Gefnarborg. Tónlistaruppeldi eflir tónlistar-, mál-, samskipta-, líkams- og hreyfigreind.

Náttúra og umhverfi
Eitt af hlutverkum leikskólans er að fræða börnin um náttúruna. Við leitumst við að kenna börnunum að bera virðingu fyrir umhverfi sínu og njóta náttúrunnar. Börnin fá gott tækifæri til að kynnast nánasta umhverfi skólans og möguleikum þess sem eru mjög margbreytilegir. Börnin fá að hlaupa frjáls í móa og á túni, klifra á steinum, kanna fjöruna og uppgötva ýmsa staði og ýmis fyrirbæri náttúrunnar. 
Endurvinnsla er hluti af vernd náttúrunnar. Því teljum við mikilvægt að börnin séu þátttakendur í endurvinnslu. Með þessu eflum við umhverfis-, líkams- og hreyfigreind, rýmis- og sjálfsþekkingargreind.

Menning og samfélag
Leikskólinn leggur áherslu á að börnin kynnist sinni heimabyggð. Gönguferðir eru fastir liðir í starfi skólans auk heimsókna í hin ýmsu fyrirtæki. Á Gefnarborg gerum við menningu okkar góð skil. Við höldum upp á aðventu, bolludag, sprengidag, öskudag og afmæli barnanna. Og höldum jólaball, þorrablót, útskriftarhátíð og sumarhátíð. Mörg börnin sem hér dvelja eru af erlendum uppruna. Við berum virðingu fyrir ólíkum bakgrunni þeirra, kynnum okkur og fræðumst um menningu þeirra og hefðir. Þetta eflir samskipta-, sjálfsþekkingar-, umhverfis-, mál-, tónlistar- og hreyfigreind.
Tölvur eru orðnar stór þáttur í samfélagi okkar. Á Gefnarborg hafa börnin aðgang að tölvum. Valin eru forrit sem hafa kennslufræðilegt gildi þ.e. forrit sem krefjast umhugsunar. Börnin vinna oft saman við að leysa verkefni og hjálpast mikið að. Þetta eflir mál-, rök- og stærðfræðigreind, samskipta- og sjálfsþekkingargreind.