Samstarf Gefnarborgar og Gerðaskóla
Mikið er lagt upp úr samstarfi milli leikskólans og grunnskólans. Markmiðið með þessum samskiptum er að skapa samfellu í námi barna/nemenda á þessum tveimur skólastigum og að skiptingin milli skólastiganna verði sem eðlilegust fyrir börnin svo ekki komi upp óöryggi og kvíði. Einnig að byggja upp gagnkvæman skilning og þekkingu á starfi kennaranna á hvoru skólastigi og leggja drög að farsælu lestrarnámi. Til að ná þessum markmiðum förum við með elstu börnin í heimsókn í Gerðaskóla í nóvember og í apríl. Í febrúar bjóðum við 1. bekk í heimsókn í leikskólann. Þess á milli eru ýmsir fundir með starfsfólki beggja skólanna.
Heimasíða Gerðaskóla