Sérkennsla / sérfræðiaðstoð

Alltaf eru nokkur börn í leikskólanum með sérþarfir sem ber að taka tillit til. Samkvæmt lögum eiga þau börn sem þurfa á sérstakri aðstoð eða þjálfun að halda rétt á henni innan leikskólans. Þar fer hún fram undir handleiðslu þroskaþjálfa, stuðningsfólks eða annarra sérfræðinga. Gerð er einstaklingsnámskrá þar sem þjálfunaráætlun er sett upp fyrir hvern einstakling.
Leikskólinn hefur aðgang að ýmsum sérfræðingum á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar s.s. talmeinafæðingi, sálfræðingi og sérkennslufulltrúa.
Komi upp hjá foreldrum eða starfsfólki leikskólans grunur um þroskafrávik hjá barni ber þeim í sameiningu að skoða það sérstaklega.