Virðing og jákvæð samskipti

Verkefnið Virðing og jákvæð samskipti hófst í ágúst 2005. Markmiðið með því er að auka gæði samskipta innan leikskólans. Verkefnið er til þriggja ára. Fyrsta árið var unnið töluvert í að efla starfsmannahópinn með ýmsum fyrirlestrum og fræðslu. Jafnhliða því var unnið með fjögur lífsgildi með barnahópnum þ.e. kærleika, hjálpsemi, gleði og virðingu fyrir náttúrunni og dýrum. Foreldrasamvinna og upplýsingastreymi til foreldra var aukið stórlega til dæmis má nefna að heimasíða var opnuð fyrsta árið og skráning í dagbók hófst. Skráð er daglega á hverri deild hvað gert var yfir daginn og haft aðgengilegt fyrir foreldra í fataklefum og á heimsíðu leikskólans. Ekki fékkst verkefnastjóri til starfa fyrsta árið og bar verkefnið nokkurn keim af því. Leikskólastjóri stýrði verkefninu og eins og gefur að skilja var það mikil viðbót við verkefni hans. Í september 2006 var ráðin til starfa verkefnastjóri. Ákveðið var að leggja sérstaka áherslu á að efla samskiptafærni starfsfólk þetta árið sem var annað ár þróunarverkefninsins. Jafnframt var ákveðið að halda áfram að vinna með lífsgildi með barnahópnum og annað árið tókum við fyrir: frið og virðingu (innri og ytri). Með tilkomu verkefnastjóra fór verkefnið á mikið flug og hefur starfsfólk fengið mikla og öfluga þjálfun og fræðslu um samskipti. Verkefnastjóri tók B.ed. gráðu við Kennaraháskóla Íslands vorið 2007 og fólst lokaverkefni hans í því að meta árangur af þróunaverkefninu. Þetta var mikið tækifæri fyrir okkur og glöddumst við yfir því að fá formlegt mat á verkefninu.

            Þetta skólaár er lokaár verkefnisins og snýst það fyrst og fremst um að festa í sessi þá þætti sem þróaðir hafa verið s.l. tvö ár. Við munum reyna að flétta inn í starfið  þau atriði sem við teljum mikilvægast að verði hluti af menningu leikskólans eftir að verkefninu lýkur. Einnig mun kynning á verkefninu skipa stóran sess þetta árið.

 

 

Yfirmarkmið fyrir starfsfólk:

Að þjálfa starfsfólk í að vera góðar fyrirmyndir með því að efla markvisst samskiptafærni þeirra.

 

Undirmarkmið

q       Að bæta samskiptin milli starfsfólks

q       Að byggja upp betri samvinnu meðal starfsfólks

q       Að vinna að því að samskiptin í leikskólanum einkennist af hreinskilni, heiðarleika og trausti

q       Að nýta og efla það góða í fari hvers starfsmanns

q       Að þjálfa starfsfólk í að þekkja, viðurkenna og stjórna eigin tilfinningum

q       Að starfsfólk temji sér að bera virðingu fyrir öllum

q       Að starfsfólk temji sér bjartsýni, glaðværð og jákvæðni

q       Að auka og bæta samvinnu heimils og skóla

 

 

Yfirmarkmið fyrir börn:

Að tryggja að í leikskólanum búi öll börnin við góðar fyrirmyndir og fái þjálfun í að tileinka sér uppbyggjandi og jákvæð samskipti.

 

Undirmarkmið

q       Að styrkja sjálfsmynd og sjálfsöryggi barnanna

q       Að börnin læri að þekkja, viðurkenna og stjórna eigin tilfinningum

q       Að börnin læri að setja sig í spor annarra og lesa í umhverfið

q       Að kenna börnunum að bera virðingu fyrir öðrum

q       Að efla samkennd  í barnahópnum

q       Að þjálfa börnin í því að sýna viðeigandi hegðun við mismunandi aðstæður

q       Að kenna börnunum að leita lausna á vandamálum og leysa ágreining á friðsamlegan hátt

q       Að styrkja það góða í fari hvers einstaklings

 

Yfirmarkmið fyrir foreldrasamstarf

Að auka samstarf heimilis og skóla.

 

Undirmarkmið
  • Að auka upplýsingastreymi til foreldra
  • Að samræma samskiptareglur og aðferðir milli heimila og skóla
  • Að hafa gott upplýsingastreymi til foreldra um verkefnið
  • Að foreldrar séu þátttakendur í verkefninu



Af hverju þetta viðfangsefni

Þetta verkefni tengist allri starfsemi leikskólans. Starfsánægja og vellíðan starfsfólks er líkleg til að skila sér í meiri gæðum í leikskólastarfinu.
Í leikskólanum er lögð áhersla á að efla sjálfstraust og leikgleði barnanna. Við teljum grunninn að þeim þáttum vera sterkan tilfinninga- og félagsþroska og því mikilvægt að efla hjá börnunum sjálfsvitund, sjálfstjórn og samkennd.
Í okkar leikskóla er mikið af börnum frá öðrum þjóðum og því mikilvægt að vinna með réttlæti og jafnrétti til að fyrirbyggja fordóma.
Þátttaka í daglegu lífi gerir miklar kröfur um hæfni í mannlegum samskiptum og getur sú hæfni skipt sköpum um hvernig einstaklingur nær að njóta sín og dafna í lífinu.
Afrakstur verkefnisins verður vonandi glaðari og hamingjusamari einstaklingar með sterka sjálfsmynd og gott sjálfstraust. Einstaklingar sem eru færir í mannlegum samskiptum og geta lifað í sátt og samlyndi við sjálfa sig og aðra.

Sjá vinnuferlið