Gerður Pétursdóttir leikskólakennari var ráðinn til starfa sem verkefnastjóri þann 1. september sl. Hún mun stýra verkefninu þetta skólaár. Starfmannahópurinn fær fræðslu og þjálfun í samskiptum og útbúnar verða starfsáætlanir fyrir börnin.
Líkt og á síðasta starfsári munum við vinna með ákveðin lífsgildi eða dygðir. Á síðasta ári tókum við fyrir; kærleika, virðingu, gleði og hjálpsemi. Fyrsta lífsgildið sem við tökum fyrir þetta árið er friður. Við ætlum að vinna með frið í október, nóvember, desember og janúar. Í febrúar munum við byrja að vinna með virðingu fyrir öðrum.
Þegar unnið er með lífsgildi með börnum má fara ýmsar leiðir til að kanna þau. Í gegnum leiki, list, söng, hreyfingu og hugarflug læra börnin félagslega færni, ný hugtök, að deila með sér, að hugsa og vera skapandi.
Fréttir af verkefninu í nóvember 2006
Kæru foreldrar í þessu fréttabréfi ætlum við að kynna ykkur þróunarverkefnið okkar Virðing og jákvæð samskipti. Við teljum mikilvægt að upplýsingastreymi um verkefnið til foreldra sé mikið og lýsandi þannig að þeir geti tekið þátt í því. Þeim mun meira sem foreldrar vita um verkefnið og taka þátt því betri verður árangurinn, bæði fyrir hópinn í heild og fyrir hvern einstakling.
Þróunarverkefnið Virðing og jákvæð samskipti
Verkefnið hófst haustið 2005 og markmiðið með því er að efla gæði samskipta í leikskólanum.
Við höfum sett niður markmið bæði fyrir starfsfólk og börn, þau eru eftirfarandi:
Yfirmarkmið fyrir starfsfólk:
Að þjálfa starfsfólk í að vera góðar fyrirmyndir með því að efla hjá því; sjálfsvitund, sjálfsstjórn og samkennd.
Undirmarkmið
? Byggja upp betri samvinnu meðal starfsfólks.
? Samskiptin einkennist af hreinskilni, heiðarleika og trausti.
? Nýta og efla það góða í fari hvers starfsmanns.
? Þjálfa fólk í að þekkja, viðurkenna og stjórna eigin tilfinningum.
? Að fólk æfi sig í og temji sér að bera virðingu fyrir öllum.
? Starfsfólk temji sér bjartsýni, glaðværð og jákvæðni.
Yfirmarkmið fyrir börn:
Að tryggja það að í leikskólanum búi öll börnin við góðar fyrirmyndir og börnin fái þjálfun í að tileinka sér uppbyggjandi og jákvæð samskipti
Undirmarkmið
? Styrkja sjálfsmynd og sjálfsöryggi barnanna.
? Að börnin læri að þekkja, viðurkenna og stjórna eigin tilfinningum.
? Þau læri að setja sig í spor annarra og lesa í umhverfið.
? Æfa börnin í því að bera virðingu fyrir öðrum.
? Efla samkennd þar sem allir æfa sig í að lifa í sátt og samlyndi og viðurkenna það að ekki séu allir eins.
? Þau æfi sig í því að sýna viðeigandi hegðun við mismunandi aðstæður.
? Þau læri að leita lausna á vandamálum og leysa ágreining á friðsamlegan hátt.
? Styrkja það góða í fari hvers einstaklings.
Gerður Pétursdóttir leikskólakennari var ráðinn til starfa sem verkefnastjóri þann 1. september sl. Hún mun stýra verkefninu þetta skólaár. Starfmannahópurinn fær fræðslu og þjálfun í samskiptum og útbúnar verða starfsáætlanir fyrir börnin.
Líkt og á síðasta starfsári munum við vinna með ákveðin lífsgildi eða dygðir. Á síðasta ári tókum við fyrir; kærleika, virðingu, gleði og hjálpsemi. Fyrsta lífsgildið sem við tökum fyrir þetta árið er friður. Við ætlum að vinna með frið í október, nóvember og desember.
Þegar unnið er með lífsgildi með börnum má fara ýmsar leiðir til að kanna þau. Í gegnum leiki, list, söng, hreyfingu og hugarflug læra börnin félagslega færni, ný hugtök, að deila með sér, að hugsa og vera skapandi.
Áætlunin okkar um frið inniheldur eftirfarandi þætti:
? Söngva
? Sögur og bækur
? Leiki, leikræn tjáning og slökunaræfingar
? Listsköpun
? Skoðanaskipti og umræður
Við reynum að flétta umræðuna og verkefnin um gildin inn í daglegt skólastarf og kennarar einbeita sér af því að byggja upp friðsælt andrúmsloft.
Íhugunaratriði um frið:
? Friður er að finna innri ró.
? Friður er innri vellíðan
? Friður er þegar öllu fólki líður vel saman og er ekki að rífast eða slást.
? Friður er að hugsa jákvætt um sjálfa/n sig og aðra.
? Friður byrjar innra með okkur sjálfum.
Friður
1. Markmið: Að auka upplifun af friði.
Undirmarkmið:
? Að gera börnunum fært um að verða hljóð og samvinnufús án átaka á innan við mínútu, þegar að þeim er gefið merki.
? Að gera börnunum fært að njóta þess að vera hljóð og friðsæl.
? Að hjálpa börnunum að auka einbeitingarhæfileika sína.
? Að túlka frið á listrænan hátt.
? Að syngja söngva um frið.
2. Markmið: að auka þekkingu á friði.
Undirmarkmið:
? Að sjá fyrir sér friðsælan heim og geta tjáð með orðum og/eða teikningum hvernig þar er umhorfs og hvernig upplifun það er.
? Að nota brúður til að sýna friðsæl samskipti.
? Að vera fær um að tala um eitt eða fleiri friðarhugtök.
3. Markmið: að byggja upp hæfileika til að leysa ágreining.
Undirmarkmið:
? Að börn setji orð á það hvað er rétt að gera þegar að við leysum úr ágreiningi og hvað er ekki rétt. T.d. við notum hendurnar til að faðmast ekki til að hrinda.
? Að geta hlustað á aðra.
? Að átta sig með orðum og/eða teikningum hvað þau vilja og hvað þau vilja ekki að aðrir geri.
? Að átta sig á með orðum og / eða teikningum á því góða sem þau geta komið til leiðar.
Að sjálfsögðu eru öll verkefnin miðuð við aldur og þroska barnanna. Á yngri deildunum er sérstaklega mikilvægt að kennarar æfi sig í gildunum og leggi þau inn í daglegt starf. Sum atriðin eru of þung fyrir yngstu börnin að skilja og þá er um að gera að einfalda þau t.d. með því að kennarinn temji sér að nota ákveðin hugtök í starfi sínu. T.d. „ nú er ró og friður hjá okkur.”
Við vonum að þessar upplýsingar komi að gagni og að þið verðið dugleg að ræða um frið og friðsælt andrúmsloft .
Með friðarkveðju, starfsfólk Gefnarborgar
Fréttabréf apríl 2007 : Virðing