Eitthvað gott
Reyndu að finna stund
til að gefa af sjálfum þér
Það gleður allra lund
að láta gott leiða af sér
Sá sem er eigingjarn
og óttaleg frekjudós
eignast aldrei sanna vin
og hann fær aldrei hrós
En sá sem er örlátur
og hugsar aldrei ljótt
eignast stóran vinahóp
sem að stækkar fljótt.
Friðsæl stjarna
Ég er friðsælt stjörnuskin
já ég er friðsælt stjörnuskin.
Er við sýnum kærleika
er við deilum kærleika.
Verðum við friðsælt stjörnublik.
Verðum við friðsælt stjörnublik.
Er við deilum kærleika
verðum við friðsælt stjörnublik.