Um Gefnarborg

Leikskólinn Gefnarborg er þriggja deilda leikskóli og er fjöldi barna er 85.  Rekstur skólans er boðinn út og er rekstraraðili leikskólans Hafrún Víglundsdóttir. Leikskólinn Gefnarborg var byggður af Kvenfélaginu Gefn og tók til starfs 10. júní 1971.  Viðbygging var tekin í notkun 1980.  Kvenfélagið rak leikskólann til áramóta 1985-1986.  Þá keypti Sveitarfélagið hann og rak til 1.ágúst 1986.  Þá var reksturinn boðinn út og hefur verið í einkarekstri síðan 15. ágúst 1999 fluttum við í núverandi húsnæði.  Leikskólinn er tveggja deilda og þar eru börn á aldrinum 2-6 ára.  Í leikskólanum er boðið upp á morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu.  Hægt er að fá vistun í 4-9 ½  tíma á dag.  Umsóknareyðublöð fyrir vistun er hægt að fá í leikskólanum og þurfa börnin að vera orðin eins árs þegar sótt er um.  Leikskólinn starfar eftir Aðalnámskrá leikskóla sem Menntamálaráðuneytið gat út og tók gildi 1. júlí 1999.