Markmið Gefnarborgar
Við vinnum eftir markmiðum Aðalnámskrár leikskóla frá 1999. Leikurinn er kjarni uppeldisstarfsins í leikskólanum því rannsóknir sýna að börn á leikskólaaldri læra mest og best í gegnum leikinn. Markmið okkar er að gefa frjálsum og sjálfsprottnum leik mikið rými og góðan tíma. Börnin þurfa að hafa ákveðið val og tækifæri til að leika sér á eigin forsendum. Þau læra og þroskast í gegnum leikinn, hið daglega starf, eigin upplifanir og með því að umgangast önnur börn. Við leggjum áherslu á að efla sjálfstraust og leikgleði barnanna. Daglegar venjur eru einnig mikilvægur hluti uppeldisstarfsins í leikskólanum. Þar gefast ótal tækifæri til náms og þroska. Við leggjum mikið upp úr því að hver og einn fái að njóta sín sem einstaklingur.
Til að ná markmiðum okkar styðjumst við m.a. við fjöldgreindarkenningu Howard Gardners. Hann byggir kenningar sínar á að greind skiptist niður í 8 mismunandi greindir sem eru:
Málgreind, rök- og stærðfræðigreind, rýmisgreind, líkams- og hreyfigreind, tónlistargreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingargreind og umhverfisgreind. Hver einstaklingur býr yfir hæfni á öllum sviðum en lögð er áhersla á að einstaklingurinn fái notið sín þar sem hann er sterkastur.