Skólanefnd
Skólanefnd starfar samkvæmt 9. gr. laga um leikskóla nr. 78/1994. Nefndin er pólitíkst kosin fimm manna nefnd, en auk þess sitja í henni sem áheyrnarfulltrúar með tillögurétt og málfrelsi rekstraraðili leikskólans, fulltrúi starfsfólks og fulltrúi foreldra, Bæjarstjóri er starfsmaður nefndarinnar. Hlutverk hennar er að fylgjast með að lögum. reglugerðum og að Aðalnámskrá leikskóla sé framfylgt. Allar ákvarðanir og samþykktir skólanefndar eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Þannig er skólanefnd aðeins ráðgefandi fyrir bæjarstjórn um málefni leikskóla