Áföll


Ef börnin verða fyrir alvarlegum áföllum s.s. vegna dauðsfalls, alvarlegra veikinda, skilnaðar eða þess háttar þá viljum við biðja ykkur að láta okkur vita. Það er auðveldara að skilja og styðja ef vitneskja um slíkt liggur fyrir. Þess skal getið að allt starfsfólk Gefnarborgar er bundið þagnarskyldu.