Fatnaður
Þar sem leikskólinn er vinnustaður barnanna er nauðsynlegt að þau séu í fötum sem má sjá á. Börnin eru að vinna með margskonar efni og alltaf geta orðið óhöpp. Nauðsynlegt er að börnin hafi með aukaföt í töskunni. Klæðnaður skal alltaf vera í samræmi við veðurfar. Nauðsynlegt er að hafa góð útiföt s.s. stígvél, regnföt og hlýjan fatnað. (Mjög gott er að merkja allan fatnað þá eru minni líkur á að eitthvað glatist). Við leggjum mikla áherslu á að þjálfa börnin sem mest í að klæða sig sjálf. Látið því ekki koma ykkur á óvart þótt húfan eða peysan snúi öfugt.