Lögregla og brunavarnir


Lögreglan kemur í heimsókn til okkar einu sinni á ári. Hún spjallar við börnin um ýmislegt er varðar öryggi þeirra í umferðinni.
Brunaæfing er einu sinni á ári. Þá kemur starfsmaður frá slökkviliðinu og setur reyk inn í leikskólann. Þá fer brunakerfið í gang og við þurfum að rýma húsið. Það er gott fyrir börnin að kynnast lögreglunni og slökkviliðsmönnum og sjá að þetta eru bara venjulegir menn sem ekki þarf að hræðast.