Opnunartími og mætingar
Leikskólinn er opinn frá kl. 7:45 til kl. 17:15. Foreldrar eru beðnir um að virða þann dvalartíma sem þeir hafa samið um. Vegna dagskipulagsins og til að auka öryggiskennd barnsins er mikilvægt að barnið mæti reglulega. Æskilegt er að barnið sé komið fyrir klukkan 8:30 fyrir hádegi og fyrir klukkan 13:30 eftir hádegi. Það hefur sýnst sig að þau börn sem mæta reglulega eru ánægðari í leikskólanum og líður þ.a.l. mun betur . Ef barnið kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða annarra ástæðna, þá vinsamlega látið okkur vita. Einnig er nauðsynlegt að foreldrar láti starfsfólk vita þegar komið er með barnið og þegar það er sótt.