Slys og veikindi
Í stórum barnahóp geta alltaf orðið slys. Ef barn meiðir sig hjá okkur það illa að við teljum þörf á að láta lækni skoða það, þá reynum við strax að hafa samband við foreldra. Leikskólinn greiðir fyrstu heimsókn til læknis.
Ekki er leyfilegt að koma með veikt barn í leikskólann. Ef barn veikist í leikskólanum er haft samband við foreldra og hlúð að barninu þar til foreldrar sækja það.