Vistgjöld
Vistgjöldin eru greidd fyrirfram. Foreldrar fá sendan gíróseðil. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 12. Hafi gjald ekki verið greitt á eindaga reiknast vanskilagjald og dráttarvextir frá gjalddaga. Skuldi foreldrar 2 mánuði eiga þeir á hættu að barnið missi plássið. Systkinaafsláttur er 25% af leikskólagjaldi fyrir annað barn og 50% fyrir þriðja barn. Athugið að gjaldið lækkar ekki þó barnið sé í fríi eða veikt. Gjaldið fellur niður meðan leikskólinn er lokaður vegna sumarleyfa. Uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
Sjá gjaldskrá